Lystadún-Marco
Lystadún-Marco er þjónustuverslun sem sérhæfir sig í öllu sem varðar hvíld.
Þjónustustig er hátt í Lystadún-Marco og leitast er við að sýna fagleg vinnubrögð og fá aðstoð sérfræðinga við lausn erfiðra verkefna ef þurfa þykir.
Lystadún-Marco setur viðskiptavininn í öndvegi og tryggir honum stöðug gæði á sanngjörnu verði. Lystadún-Marco selur ekki ótrygg gæði. Vinnufyrirkomulag er þannig að frágangur og uppröðun í versluninni er framkvæmd á morgnana frá kl 09:00 og henni haldið við allan daginn.
Markmiðið er að veita góða þjónustu þannig að viðskiptavinurinn fari ánægður og sjái ástæðu til að koma aftur.
Markmiðið er að ef viðskiptavin vanti eitthvað sem tengist viðkomandi verslunum komi okkar vörumerki fyrst upp í hugann.
Til að tryggja stöðug og jöfn gæði er haft eftirlit með öllum vöruferlum, þ.e. frá móttöku í lager í gegnum byrgðarbókhald og síðan pantana- og sölukerfi, þannig er hægt að rekja vöruferla ef eitthvað kemur upp á.
Starfsfólk Lystadún-Marco skal hafa góða vöruþekkingu og vera þjálfað í samskiptum við viðskiptavini.
Í framtíðinni mun fyrirtækið reka þrjár verslanir undir sama þaki að Mörkinni 4, 108 Reykjavík og Hofsbót 4, 600 Akureyri og heildverslunin verður kynnt með nöfnunum LYSTADÚN-MARCO og VOGUE.




