heim
fyrirtækid

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Saga fyrirtækisins

Lystdún-Marco er rekið af eignahaldsfélaginu Dimar ehf., aðalstöðvar félagsins eru í Mörkinni 4, 108 Reykjavík.

Pétur Snæland hf. var stofnað 1949 og hóf framleiðslu á 100% Latexi fyrir rúmdýnur, kodda o.s.frv. Vegna stríðsástands í Indókína 1968 var framleiðslu á Latexi hætt en í stað þess var hafin framleiðsla á Polyurethansvampi. Í báðum tilfellum var fyrirtækið meðal þeirra fyrstu í Evrópu til að framleiða þessar afurðir. Framleiðsla og afgreiðsla fór fram að Vesturgötu 71 og síðar að Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Verslun var rekin að Síðumúla 33 og flutti að Skeifunni 8 árið 1986.

Lystadún hf. sem hóf rekstur 1956 í þeim tilgangi að flytja inn svamp frá Lysthager a.s. í Danmörku til framleiðslu á rúmdýnum o.fl. með niðurskurði á blokkum. Síðar flutti fyrirtækið einnig inn svamp og latex í sama tilgangi frá Dunlopillo í Englandi. Fyrirtækið sameinaðist Pétri Snæland hf. að Skútuvogi 13 árið 1991 og nefndist fyrirtækið eftir það Lystadún-Snæland ehf. og voru aðalstöðvar þess að Skútuvogi 13, 104 Reykjavík.

Lystdún-Snæland ehf. var rekið með óbreyttu sniði fram í oktober 2001 en þá keypti það húsgagnaverslunina Marco í Mörkinni 4 og flutti þá um leið alla starfsemi sína þangað.

Marco var í upphafi stofnað í þeim tilgangi að flytja inn net og veiðarfæri frá Japan árið 1956. Síðar eða árið 1987 hóf Marco rekstur með húsgagnaverslun og sérhæfði hún sig í Amerískum húsgögnum. Marco og Lystdún-Snæland sameinast þann 1. október 2001. 

Í maímánuði árið 2002 kaupir Lystdún-Snæland ehf. rekstur Vogue ásamt nafni, byrgðum og tækjum af Vogue ehf. Vouge ehf. var stofnað árið 1951 í þeim tilgangi að flytja inn og selja bæði í smásölu og heildsölu ýmiskonar vefnaðarvörur til heimila, stofnana og fyrirtækja. Vogue ehf. var lengst af með höfuðstöðvar að Skólavörðustíg 12 og rak einnig víða um land verslanir undir sínu nafni. Eftir kaupin var rekstur Vogue fluttur úr húsnæði þess að Skeifunni 6 í Mörkina 4, verslun á Selfossi var seld og verslun að Þarabakka í Mjódd var lokað en rekstur verslunar á Akureyri haldið áfram. 

Þann 22. nóvember 2003 var verslunin Vogue á Akureyri flutt af Skipagötu í mun stærra húsnæði að Hofsbót 4 sem rúmar á svipaðan hátt alla verslunarþætti fyrirtækisins eins og í Reykjavík. 

Í framtíðinni mun fyrirtækið reka þrjár verslanir undir sama þaki að Mörkinni 4, 108 Reykjavík og Hofsbót 4, 600 Akureyri og heildverslunin verður kynnt með nöfnunum LYSTADÚN-MARCO og VOGUE.

Á vormánuðum 2005 keypti Dimar ehf. rekstur Sólargluggatjalda, ásamt nafni, byrgðum og tækjum. Sólargluggatjöld hafa í yfir hálfa öld framleitt ýmiskonar gluggatjöld og þá lengst af rimlagluggatjöld, því má segja að fyrirtækið hafi verið brautryðjandi á sínu sviði iðnaðar. Sólargluggatjöld bjóða heildarlausnir á sviði gluggatjalda til fyrirtækja, stofnana og heimila og leggja kapp á að vera fyrst með nýjungar á sínu sviði. Verslun og verksmiðja er nú í Skeifunni 11.