Sealy
Stuðningur sem þú treystir, þægindi sem þú elskar.
Sealy er stærsti dýnuframleiðandi heims og eru Posturepedic rúmin frá Sealy vinsælustu heilsurúm í Bandaríkjunum síðastliðin 30 ár, enda eyðir Sealy meiri fjármunum í vöruþróun en allir aðrir dýnuframleiðendur. Posturepedic fjaðrakerfið var hannað í samvinnu við nokkra færustu bæklunarlækna Bandaríkjanna enda er það einstakt að allri gerð og gefur betri og jafnari stuðning við líkamann en önnur fjaðrakerfi.
Posturepedic fjöðrin.
Posturepedic fjaðrakerfið er hjartað í heilsudýnunni. Fjöðrin er hönnuð í samvinnu við færustu bæklunarlækna í USA. Hann gefur betri og jafnari stuðning við hrygginn í vinsælustu heilsudýnu bandaríkjanna síðastliðin 30 ár.
Unicased styrktarramminn.
Gefur dýnunni stífari kanta , dregur úr óæskilegum hreyfingum fjaðrakerfisins og tryggir hámarksnýtingu á svefnfletinum.
Micro Tech undirdýnan.
Micro Tech undirdýnan er sterkari og sveigjanlegri en aðrar undirdýnur og með Micro Span dempurum sem festir eru ofan á viðar- og stálbita í botni neðri dýnunnar. Stálið ásamt Micro Span dempurunum tryggja ótrúlega góða endingu undirdýnunnar.
Micro Tech undirdýnan er tryggð gegn braki.
Yfirdýnur
Yfirdýnur eru þunnar dýnur sem lagðar eru ofan á aðrar dýnur til að breyta yfirborðseiginleikum þeirra. Yfirdýnur eru til í mörgum gerðum og hefur hver sína eiginleika svo sem til mýkingar, loftunar,
einangrunar, þrýstijöfnunar o.s.frv.
Clearest áklæðið er á öllum yfirdýnum okkar fyrir utan eggjabakkadýnuna sem kemur án áklæðis. Clearest áklæðið vinnur gegn bakteríum, rykmaurum og sveppamyndun. Dýnuverið má taka af og þvo við 60º.
Celius heilsudýnan kennd við NASA
- 5 cm. þrýstijöfnunardýna
- Einstakir þrýstijöfnunareiginleikar
- Dregur úr álagspunktum
- Truflar ekki blóðflæði
- Minni þörf á að hreyfa sig
- Clearest áklæði
Latex heilsudýnan
- 6 cm. svæðaskipt yfirdýna
- Mýkra axlasvæði
- Loftar vel
- Clearest áklæði
Svampdýna 5 cm.
- Yfirborðsmýkt
- Vermir
- Eykur loftun
- Clearest áklæði
Eggjabakkadýnur 4 og 6 cm.
- Yfirborðsmýkt
- Vermir
- Eykur loftun
- Dýnurnar eru án áklæðis





