heim
Húsgögn

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Húsgögn

Svefnherbergishúsgögn frá Ruf betten í Þýskalandi, Van Haudt í Belgíu, Monrabal á Spáni og Gautier í Frakklandi. Hvíldarstólar, sófar og svefnsófar frá Action Lane í Bandaríkjunum. Svefnsófar frá J.S. Tapizados á Spáni.

Við bjóðum upp á mikið úrval húsgagna frá eftirtöldum framleiðendum og mörgum fleiri bæði með sérpöntunarþjónustu og af lager.

Auk þess sérframleiðum við ýmis húsgögn, til dæmis svefnsófa, náttborð og höfðagafla, nákvæmlega eftir þínum þörfum.

gautier

Gautier


Franska fyrirtækið Gautier á sér langa sögu. Árið 1958 fór öll starfsemi þess fram í lítilli vinnustofu í Nantes þar sem herra Gautier smíðaði og skar út vönduð og listræn húsgögn. Í dag er framleiðandinn sá fremsti í nútímalegum húsgögnum á Evrópumarkaði og stundar verslun í yfir 40 löndum.

Gautier er nýungagjarnt fyrirtæki sem býður sífellt upp á nýjar og betri lausnir í jafnvægi við vönduð og stílhrein tískuhúsgögn. Sjáðu meira á www.gautier.fr

 

massemueble

Massmueble


Moblicop S.C.V er framleiðandi Massmueble. Fyrirtækið er tiltöllega ungt að árum en það var stofnað árið 1990. Vöxtur og velgengni Moblicop hefur verið gríðarlegur á þessum stutta tíma. Sem dæmi má nefna að á árunum 1997 til 2000 jókst framleiðsla og sala fyrirtækisins um hvorki meira nér minna en 300%. Þessar tölur segja meira en mörg orð um gæði og verðleika húsgagna frá Massmueble. Skoðið nánar á heimasíðunni: www.massmueble.com

 

Mdr

MDR


MDR var stofnað af bræðrunum Archiel og André Decury í Belgíu árið 1947.

Gæði og góð þjónusta hafa ávallt verið megináherslur innan fyrirtækisins og hefur það leitt til þess að MDR er orðið að stórveldi hvað varðar framleiðslu og sölu á húsgögnum.

Skoðið nánar á á vefsíðu fyrirtækisins: www.mdr.be

 

shermag

Shermag


Shermag hefur verið einn stærsti húsgagnaframleiðandinn í Norður-Ameríku síðustu 25 árin. Það sem gefur Shermag sérstöðu er áhersla hönnuðanna á hlýleika og rómantík viðarins. Skoðið nánar á glæsilegum vef fyrirtækisins: www.shermag.com

 

halepensis

Halepensis


Halepensis var stofnað árið 1996. Fyrirtækið varð fljótlega stórt á spænskum markaði en það sérhæfir sig í framleiðslu á vönduðum og fallega hönnuðum furuhúsgögnum með persónuleika. Allar nánari upplýsingar má finna á vefnum: www.grupohalepensis.es


monrabal

Monrabal


Monrabal er dæmigert fjölskyldufyrirtæki. Mr. Miguel Monrabal Alapont opnaði litla vinnustofu árið 1920. Síðan þá hefur fyrirtækið stækkað og dafnað undir handleiðslu sona hans og nú á dögum stundar Monrabal viðskipti um allan heim.

Vel valinn efniviður og vönduð vinnubrögð einkenna húsgögnin frá Monrobal. Chiravella-línan sem seld er í Lystadún Marco er í klassískum stíl þó hún sé bætt með nýstárlegum hugmyndum.

Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Monrabal: www.monrabalchirivella.com/

 

Van houdt

Van Houdt


Van Houdt er húsgagnaframleiðandi frá Belgíu. Van Houtd sameinar hagnýtni og tísku við framleiðslu á sterklegum og fallegum gæðahúsgögnum. Þrátt fyrir þetta hefur framleiðandinn ekki gleymt því að til að ná til sem flestra þarf verðið að vera hagstætt.

Frekari upplýsingar um Van Houdt má finna á heimasíðu framleiðandans: www.v-houdt.be

 

Ruf Betten

Ruf Betten


Ruf Betten hefur sérhæft sig í hönnun og framleiðslu á svefnherbergishúsgögnum svo sem höfðagöflum, rúmum, náttborðum, klæðaskápum, rúmteppum, púðum og borðlömpum.

Hannaðu svefnherbergi drauma þinna með húsgögnum frá Ruf. Þú velur saman höfðagafl, fótagafl, rúmgrind og fætur. Síðan velur þú áklæðistegund og lit áklæðis. Þá kemur náttborð, borðlampi , bekkur, rúmteppi og púðar og draumarúmið er orðið að veruleika.

Allar vörur eru sérpantaðar og afgreiðalutími er ca. 8-10 vikur frá því að pöntun er gerð.

Hámarks gæði, nútímaleg hönnun og fjölbreytileiki eru ávallt höfð að leiðarljósi, enda eru vörurnar frá Ruf löngu orðnar heimsþekktar.
Ruf betten er systurfyrirtæki Rolf Benz AG

Nánari upplýsingar og fjöldi hugmynda á: www.ruf-betten.de