heim
Mediline

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Mediline

Dýnurnar í MediLine línunni eru hannaðar með notkun á sjúkrastofnunum í huga þar sem hin mikla breidd línunnar uppfyllir flestar kröfur um fjölbreytileika og þægindi fyrir skjólstæðinga þeirra stofnana.

Rúmin í MediLine línunni eru til í fjölmörgum gerðum, stærðum og stífleikum þannig að flestir ættu að geta fundið hvílu við sitt hæfi. Þau eru öll byggð á tvöföldu fjaðrakerfi, þar sem dýna og rúmbotn vinna saman að því að notandinn hvílist sem best.

Allar MediLine heilsudýnurnar eru með Clearest áklæði sem vinnur gegn bakteríum, rykmaurum og sveppamyndun. Dýnuverið má taka af og þvo við 60º.

Markmið okkar er að veita eins góða þjónustu og unnt er hverju sinni. Við getum útbúið hvaða dýnustærð sem er á innan við 10 dögum frá pöntun.

MediCel þrýstijöfnunardýnan
- Einstök þrýstijöfnun
- Truflar ekki blóðflæði
- Minni svefnhreyfingar
- Færri álagspunktar
- Vinnur gegn legusárum
- Dempar líkamshreyfingu 100%
- Mjúk, meðal og stíf
- Stífir/mjúkir kantar

MediLat latexdýnan
- Svæðaskiptur stífleiki
- Mjúkt axlasvæði
- Frábær fjöðrun
- Auðveldar svefnhreyfingar
- Loftar vel
- Þarf ekki að snúa
- Veitir góðan stuðning
- Vinnur gegn rykmaurum
- Dempar líkamshreyfingu 100%
- Mjúk, meðal og stíf
- Stífir/mjúkir kantar

MediFoam heilsudýnan
- Lagaskipt með tvöföldu eggjabakkalagi
- Loftar vel
- Mjög góð fjöðrun
- Þarf ekki að snúa
- Dempar líkamshreyfingu 100%
- Mjúk, meðal og stíf
- Stífir/mjúkir kantar