Mjúka deildin
Hágæða sængur og heilsukoddar.
Gjafavara í miklu úrvali frá þekktum vörumerkjum.
Handklæði, sloppar, baðmottur og baðvara frá Christy og Aquanova.
Sængurfatnaður frá Södahl og Rocha.
Þetta eru aðeins örfá dæmi um það sem Lystadún-Marco hefur uppá að bjóða.
Ef að hugmyndin er að lífga upp á svefn- eða baðherbergið þá færðu lausnina hjá Lystadún Marco.
Sængur
Ímyndaðu þér ekta íslenskt, kalt vetrarkvöld. Hvað er þá betra en að kúra sig undir mjúkri og hlýrri, en samt léttri andadúnsæng? Ef þú ert mikið fyrir kakó þá mælum við með Sonata fibersængum, því þær má þvo við allt að 95°C, ef þú skildir sulla niður.
Sonata fibersængurnar eru einmitt notaðar á flestum sjúkrahúsum á Íslandi, sökum gæða og þvottaeiginleika.
Heilsukoddar
Í Lystadún-Marco færð þú úrval gæða Heilsukodda sem gera góðan svefn enn betri.
Latexkoddarnir frá Dunlopillo hafa farið sigurför um heiminn og munu svo sannarlaga mýkja upp þínar stífu axlir rétt eins og annarra.
Eins bjóðum við upp á polyesterkodda frá Sonata sem má þvo a 95°C í þvottavél. Hvern dreymir ekki um slíkt?
Pífur
Lystadun-Marco býður uppá sérsaumaðar pífur að óskum hvers og eins.
verð frá 6.100.- kr.
Rúmteppi
Mikið úrval af rúmteppum og púðum frá Moltex





