Reference
Reference heilsurúmin frá Recticel eru gæðavara framleidd af stærsta rúmaframleiðanda í Evrópu.
Þau byggja á tvöföldu fjaðrakerfi þar sem rúmbotn og dýna vinna saman að því að þægindi og stuðningur við líkamann verði
sem jafnastur og bestur. Fjaðrakerfið er samsett úr 220 vönduðum Bonnell fjöðrum pr. fermetra sem gefur djúpa og þægilega mýkt. Á yfirborð dýnunnar er þykkt bólsturlag úr vönduðum hráefnum sem tryggja bæði góða endingu og einangrun frá
fjöðrunum. Rúmin standa á 6 fótum sem gefa meiri styrk og betri stöðuleika. Hæð frá gólfi er 65 eða 58 cm. allt eftir lengd fóta.
Recticel fyritækjasamsteypan er stærsti framleiðandi rúma og rúmdýna í Evrópu. Til að tryggja að framleiðsla
fyrirtækjanna sé alltaf sú besta sem völ er á hverju sinni, rekur Recticel 120 manna óháða rannsóknarstofu sem fylgist með gæðum hráefna og framleiðsluvöru auk þess að sjá um þróun nýrra vörutegunda. Auk þess að þjónusta eigin fyrirtæki sinnir hún rannsóknum bæði fyrir opinber gæðaeftirlit og keppinauta.
Skoðið nánar á vefsíðunni www.recticel.com





