Sjúkraþjálfi
Ráðleggingar sjúkraþjálfa
Það getur verið erfitt að velja sér dýnu úr öllu því úrvali sem í boði er á markaðnum. Því býður Lystadún Marco upp á þjónustu sjúkraþjálfara sem aðstoðar fólk við val á dýnu. Þessi þjónusta er í boði á fimmtudögum frá kl. 16.00- 18.00 (ekki yfir sumarmánuðina). Starfsfólk Lystadún Marco hefur auk þess hlotið þjálfun hjá sjúkraþjálfara í að leiðbeina fólki við val á dýnu.
Þegar velja á dýnu er að mörgu að hyggja. Almennt eru rúmdýnur orðnar mýkri en áður var
og er hugsunin á bak við það að dýnan lagist að líkamsvexti fólks og veiti þannig betri stuðning. Með þessum hætti næst góð líkamstaða liggjandi. Mikilvægt er að fá hrygginn í stöðu sem hvílir hann og styður vel.
Algengast er að fólk sofi á hliðunum og þá er öxlin og mjöðmin álagssvæði. Mikilvægt er að öxlin fái rými í dýnunni og því þarf að vera mýkra svæði fyrir hana. Mjöðmin er þyngsta svæði líkamans og þarf góðan stuðning engu að síður getur hún verið viðkvæm fyrir þrýstingi og þarf hún því nokkra yfirborðsmýkt. Ef ekki er nógur styrkur í dýnunni undir mjöðminni er hætta á að hryggurinn sígi í hliðbeygju. Fleiri þættir skipa máli, eins og aldur fólks, líkamlegt ástand, vaxtarlag og sjúkdómar.
Almennt talað þarf fólk sem hefur miklar sveigjur í hryggnum þ.e. mikla mjóbakssveigju eða breiðar axlir, mýkra yfirborð sem fyllir upp í og styður við sveigjurnar.
Fólk sem er þungt á sér eða á erfitt með að hreyfa sig þarf dýnu sem auðvelt er að snúa sér í. Því ætti að velja vandaða gormadýnu eða latexdýnu í slíkum tilfellum. Einnig ætti rúmið að vera með háum fótum til að auðvelda fólki að komast fram úr.
Ef fólk glímir við mikla snerti-viðkvæmni í öxl eða mjöðm og þolir illa þrýsting á þessi svæði, kemur þrýstijöfunardýna vel til greina, þó aðeins ef fólk er nokkuð lipurt í að snúa sér. Latexdýna væri líka góður kostur og þá sérstaklega ef fólk á erfitt með að hreyfa sig.
Margir þjást af gigtarsjúkdómum, sérstaklega þegar aldurinn færist yfir.
Morgunstirðleiki er þekkt fyrirbæri. Þá hefur líkaminn verið lengi í sömu stöðu og líkar það ekki. Oft líður gigtarskrokkum best ef þeir eru í léttri hreyfingu. Því ætti ekki að velja dýnu sem dregur úr hreyfingum fólks eins og þrýstijöfnunardýnan gerir, heldur velja dýnu sem auðveldar fólki svefnhreyfingar.
Kristín Gísladóttir,
Sjúkraþjálfari hjá Gáska.





