heim
Sófar og stólar

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Sófar og stólar

Dúnmjúkir og kósý sjónvarpssófar, hágæða leðursófar, grjónastólar, amerískir hægindastólar, nuddstólar, sérsniðnir sófar og stólar með innbyggðum hátölurum. Allt ofantalið og meira til stendur þér til boða hjá Lystadún Marco.

Hér að neðan getur þú fræðst nánar um helstu byrgja okkar og framleiðendur í þessari deild, skoðað myndir og jafnvel heimasíður. Besti kosturinn er þó alltaf að koma á staðinn og berja gripina augum.

 

violino

Violino

Violino er nýlegur en gríðarlega ört vaxandi framleiðandi sem rekur öfluga starfsmannastefnu og leggur ríka áherslu á nýstárlega, fyrsta flokks gæðaframleiðslu.

Sófarnir frá Violino eru allir unnir úr fyrsta flokks hráefni og klæddir með hágæða leðri. Fyrirtækið notast aðeins við kúaleður en forðast að nýta sér afurðir dýra sem eru í útrýmingarhættu.

Violino framleiðir jafnt hátísku sem klassíska sófa og stóla, enda hefur framleiðandinn fjölda hönnuða á sínum snærum. Nýlega hóf fyrirtækið einnig framleiðslu á leðurrúmum.

Nánari upplýsingar um framleiðandann má finna á heimasíðu Violino: www.violino.com

 

lane

Lane


Lane hefur framleitt gæða heimilishúsgögn í nærri 100 ár, þrátt fyrir það einblýnir fyrirtækið ekki á afrek fortíðarinnar, heldur horfir það fram á veginn í þeirri trú að sífellt þurfi að þróa nýja tækni og tískustrauma til að uppfylla þarfir viðskiptavinarins.

Úrval Lystadún Marco af vörum frá Lane takmarkast af sófum og hægindastólum en þó er hægt að panta aðrar vörur frá Lane með hjálp sölufulltrúa.

Til að nálgast frekari upplýsingar bendum við á heimasíðu Lane: www.lanefurniture.com

eyechair

Sit & Joy

Sit & Joy er skemmtileg og lífleg lína með áherslu á nútímaleg þægindi og hagkvæmni fyrir ungt fólk á öllum aldri.

Fjöldi grjónapúða í öllum regnbogans litum og mögulegum formum og stærðum frjóvga ímyndunaraflið og auka bæði þægindi og leikgleði.

Um er að ræða fjölbreytta línu þar sem þörfum allra sem kjósa þægindi, gleði og lífsgæði er mætt.

Sérstaka athygli vekur EyeChair, grjónapúði með innbyggðum hátölurun og tengjum fyrir iPod, Playstation og fleiri spennandi græjur. Upplifðu að sitja í töff grjónastól og hlusta á tónlist, horfa á sjónvarp, spila tölvuleiki eða hvaðeina og það í fyrsta flokks hljómgæðum. Eyechair er framtíðarnauðsyn unga fólksins og án efa vinsælasta gjöf dagsins í dag.