heim
Stefna

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Stefna fyrirtækisins

Lystadun-Marco er þjónustuverslun sem sérhæfir sig í öllu sem varðar hvíld.

Þjónustustig er hátt í Lystadun-Marco og leitast er við að sýna fagleg vinnubrögð og fá aðstoð sérfræðinga við lausn erfiðra verkefna ef þurfa þykir.

Lystadún-Marco setur viðskiptavininn í öndvegi og tryggir honum stöðug gæði á sanngjörnu verði. Lystadún-Marco selur ekki ótrygg gæði.Vinnufyrirkomulag er þannig að frágangur og uppröðun í versluninni er framkvæmd á morgnanna frá kl 09:00 og henni haldið við allan daginn.

Markmiðið er, að veita góða þjónustu þannig að viðskiptavinurinn fari ánægður og sjái ástæðu til að koma aftur.

Markmiðið er, að ef viðskiptavin vanti eitthvað sem tengist viðkomandi verslunum, komi okkar vörumerki fyrst upp í hugann.

Til að tryggja stöðug og jöfn gæði er haft eftirlit með öllum vöruferlum, þ.e. frá móttöku í lager, í gegnum birgðarbókhald og síðan pantana- og sölukerfi, þannig er hægt að rekja vöruferla ef eitthvað kemur upp á.

Starfsfólk Lystadún-Marco skal hafa góða vöruþekkingu og vera þjálfað í samskiptum við viðskiptavini.