Stillanleg rúm
Lystadún-Marco býður upp á fjölbreytt úrval stillanlegra rúma sem aðlaga sig að líkamsstöðu þinni hverju sinni og tryggja þannig bestu mögulegu hvíld sem völ er á. Hvort sem þú kýst að geta breytt stillingu rúmsins eftir aðstæðum eða að hafa rúmið þitt stillt samkvæmt þínu svefn-DNA þá höfum við lausnina fyrir þig.

bluconfort
Rétt stilling á rúmi og vandlega valin dýna skiptir meginmáli.
Engir tveir eru eins. Með því að stilla minnkar þörfin á að hreyfa sig
Seychelles og Medilat heilsudýnur
- 5 svæða stífleiki
- Mýkra axlasvæði
- Loftræsta sig vel
- Margir stífleikar
- Styðja vel við líkamann
- Auðvelda svefnhreyfingar
PBS Pressure Balance system er byltingarkennt gagnvirkt kerfi þar sem allar fjaðrir rúmbotnsins eru samvirkar. Þegar einni fjaðraeiningu er þrýst niður lyftist næsta fjöður upp og þannig koll af kolli þar til allar fjaðrir þrýsta jafnt á líkamann. Á þennan hátt fær líkaminn einstaka þrýstijöfnun.
Hvers vegna Activa Kynetic 2 -2T?
- Níðsterk álgrind með byltingarkenndu PBS fjaðrakerfi.
- Sjálfvirk þrýstijöfnun líkamans fyrir tilstilli PBS fjaðrakerfis.
- Mikil fjöðrunardýpt léttir þunga af öxlum og réttir úr hryggsúlu.
- Rafstillt eða án sleðafærslu.
- Hægt að fella inn í flestar rúmgrindur.
- Má nota með mismunandi dýnum, allt eftir óskum hvers og eins.
- Hægt að fá með nuddi.
- Hægt að fá með innrauðri fjarstýringu.
Hvers vegna Bluconfort 230?
- Sterkbyggt með vönduðu fjaðrakerfi.
- Stillanlegur stífleiki á mjaðmasvæði tryggir réttan stuðning við mjaðmir og mjóbak.
- Mýkra axlarsvæði léttir þunga af öxlum og réttir úr hryggsúlu.
- Rafstillt eða án stillinga (fix).
- Hægt að fella inn í flestar rúmgrindur.
- Má nota með mismunandi dýnum, allt eftir óskum hvers og eins
- Hægt að fá með nuddi.
- Hægt að fá með innrauðri fjarstýringu.
Nánari upplýsingar um bluconfort má nálgast á vefsíðu fyrirtækisins á www.nottinblu.it.

Ergo
Upphafið af öllu er heilbrigt bak. Þegar allt kemur til alls, er gott heilbrigði það sem menn óska sér ofar öllu. Heilbrigt bak er mjög veigamikill þáttur í þeirri ósk. Hryggurinn með sínum 26 hryggjaliðum er bæði líffræðilega og verkfræðilega flókið fyrirbæri og til þess að hann skili sem bestum árangri, bæði í starfi og líðan þarf hann góða hvíld eftir amstur dagsins.
Í daglegu lífi, sama hvaða atvinnu menn stunda er ýmiskonar bakáreynsla óhjákvæmileg. Því er mjög mikilvægt fyrir hvern og einn að bak hans fái bestu mögulegu afslöppun þegar hvílst eða sofið er.
Læknisfræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á, að eðlileg lega í rúmi tryggir bestu hvíldina. Ef legan er óeðlileg á einhvern hátt, vakna menn með ýmiskonar strengi og ná ekki ótrufluðum svefni.
Klæðskerasniðið rúm fyrir þig. Enginn er eins og rúmið þarf að henta þér! Ergosleep hefur þróað á mjög vísindalegan hátt rúmbotn sem fyrirfinnst ekki hjá öðrum rúmbotnaframleiðendum. Hugmyndafræðin eru
sjálfstæðar og stillanlegar fjaðureiningar sem gera það að verkum, að hver og einn getur stillt sína kjörlegu og endurstillt ef um einhverjar líkamlegar breytingar er að ræða t.d. vegna þungunar.
Ergosleep rúmið er einstakt, því á handhægan hátt er hægt að stilla hann og endurstilla þar til kjörhvíld er náð.
Ergosleep P3 veitir þér hámarkshvíld
- Stillanleg hæð á fjaðureiningum
- Svæðaskiptur stífleiki á fjaðureiningum
- Þrjár mögulegar stillingar fyrir fætur
- Fjaðureiningar eru jafnstífar enda á milli

Otten
Otten er þýskt fyrirtæki sem hefur unnið að því að bæta svefn Evrópubúa í yfir 60 ár. Otten er leiðandi rúmaframleiðandi í Þýskalandi sem stundar viðskipti um allan heim. Fyrirtækið einbeitir sér að því að framleiða hágæða dýnur og rúmbotna í evrópskum stíl og leggur sig fram við að mæta þörfum kaupandans hvort sem um er að ræða með gæðum, þörfum eða verði. Framleiðendur Otten vinna stöðugt af því að hanna jafnvel enn betri svefnlausnir fyrir þig.
Sjá má frekari upplýsingar á heimasíðu framleiðandans: www.otten-matratzen.de/





