heim
Svampur

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Svampur

Svampur er ekki bara svampur! Hefur þú leitt hugann að því hvernig þér liði í rúminu þínu eða uppáhalds stólnum eða sófanum þínum ef enginn svampur væri til? Staðreyndin er sú að svamp er að finna í nánast öllum rúmum, hægindastólum og sófum sem framleidd eru í dag. Því mýkra og þægilegra sem húsgagnið er þeim mun meira af svampi er í því.

Ef þú vilt vera öðruvísi eða stöðluð húsgögn passa ekki vel inn í íbúðina eða herbergið þitt láttu þá hugmyndflugið ráða. Þú getur hannað þín eigin húsgögn með aðstoð fagfólks Lystadún Marco.

Þjónusta Sérsvið þjónustudeildar Lystadún Marco er hvers kyns úrvinnsla úr svampi og svampefnum bæði með áklæði og án. Helstu viðskiptavinir eru einstaklingar, heilbrigðisstofnanir, leikskólar, útgerðarfyrirtæki, bólstarar og húsgagnaframleiðendur auk húsgagnaverslana.
Upphaf þjónustudeildar Lystadún Marco má rekja allt aftur til ársins 1949 þegar fyrstu gúmmídýnur fyrirtækisins komu úr framleiðslu. Framleiðslusvið þjónustudeildarinnar eru annars vegar framleiðsla á stöðluðum og sérsniðnum rúmdýnum, hins vegar rekstur á saumastofu þar sem framleidd eru ver á rúmdýnur og hvers kyns púða og setur.