heim
Að velja svamp

heilsurúm

húsgögn

mjúka deildin

svampur

 

Að velja svamp

Sú svampgerð sem mest er notuð til dýnugerðar og húsgagnabólstrunar er polyurethansvampur. Gæði hans markast af eðlisþyngd hans (kg/rúmmetra). Því meiri sem hún er, þeim mun betur endist hann og því meiri verður fjöðrunin.

Réttur svampur er valinn með tilliti til þess hvernig á að nota hann, þ.e. eðlisþungur svampur þar sem búast má við áníðslu en þéttur þar sem notkun verður minni.

Í hverjum þyngdarflokki eru til margir stífleikar en stífleikinn einn og sér segir ekki til um endingu eða eðlisþynd, því til er ofurmjúkur þungur svampur og mjög stífur léttur svampur.

Þegar svampdýna er valin er skynsamlegt að íhuga hvernig á að nota hana, þ.e. hvort hún sé notuð að staðaldri, fyrir barn, fyrir gesti, fyrir þungan eða léttan einstakling, í sumarhús og þá hvort hún eigi að vera á svefnlofti, efri eða neðri koju o.s.frv.

Eðlisþyngd, stífleiki og þykkt svampdýnu ákvarðast því af notkunarsviði hennar.

Rúmbotn undir svampdýnu þarf að vera vel loftræstur, t.d. vel boruð spónaplata eða rimlabotn en betra er að nota fjaðrandi viðarrimlabotn eða gormabotn, því dýnan endist lengur og fjaðrar betur ef rúmbotninn fjaðrar vel.

Hér á eftir fer listi yfir mismunandi gerðir af svampi og stutt lýsing á virkni hans og til hvers konar notkunar er ætlast til af honum.

20 - 120 S Léttur og stífur svampur sem notaður er það sem álag er mikið, t.d. í ódýrar gestadýnur.

25 - 085 M Léttur og mjúkur svampur sem notast t.d. í barnadýnur og mjúka bakpúða í sófa.

25 - 150 S Stinnur og léttur svampur sem notast aðallega í ódýrar rúmdýnur.

28 - 060 MM Mjög mjúkur svampur sem notast aðallega í mjúkar yfirdýnur eða heilsukodda.

30 - 120 Eldtrafjandi, meðalmjúkur, dýnu- eða baksvampur sem notast þar sem krafist er eldtrafjandi hráefna.

35 - 160 M Meðalmjúkur svampur sem notast í rúmdýnur og sessur í sófa.

35 - 220 S Stífur meðalþungur svampur sem notast í mjög stífar rúmdýnur og sessur á stóla og bekki.

43 - 110 Eldtrafjandi, meðalmjúkur og þungur svampur sem notast í setur á bekki og sófa þar sem eldtefjandi hráefna er krafist.

40 - 130 M Mjúkur og þungur svampur sem notast í vandaðar mjúkar rúmdýnur og stólsetur.

40 - 150 MS Meðalmjúkur og þungur svampur sem notast í vandaðar og mjúkar rúmdýnur og sólsetur.

40 - 300 S Stífur og þungur svampur sem notast aðallega í eldhús- og skrifstofustólsetur og í bílsæti.

46 - 320 S Mjög stífur og eðlisþungur svampur sem notast nær eingöngu í þunnar og stífar sessur á skifstofustóla, eða þar sem álag er mikið.

60 - 060 C° ViscoElastic hægsökkvandi, hitavirkur þrýstijöfnunarsvampur sem notast í sjúkra- og skipadýnum.

140 - 400 Mjög harður, endurunninn svampur sem notast í íþróttadýnur og mjög harða kanta til uppbyggingar á t.d. bílsætum.

Latex. Mjög eðlisþungur og vandaður gúmmísvampur sem notast aðallega í rúmdýnur og yfirdýnur í hæsta gæðaflokki.